Sunday, December 7, 2025

Alma íbúðafélag hf.: Útgáfa á víxlum

Share

Alma íbúðafélag hf. hefur lokið sölu á víxlum í tveimur flokkum til 3ja og 6 mánaða. Samtals bárust tilboð að fjárhæð 1.700 m.kr.

Alma hefur ákveðið að taka tilboðum að fjárhæð 1.020 m.kr. í 3ja mánaða víxilinn á 8,81% vöxtum og 640 m.kr. í 6 mánaða víxilinn á 8,80% vöxtum eða samtals 1.660 m.kr. Áður hafði félagið selt 560 m.kr. í víxlinum AL 25 1215 og nemur heildarstærð útgáfunnar því 1.580 m.kr.

Arctica Finance hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagurinn 15. september 2025.

Nánari upplýsingar veitir:

Ingólfur Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri, [email protected].

Read more

Latest Stories