Monday, April 6, 2026

Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 50

Share

Í 50. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.151.000 eigin hluti að kaupverði 13.113.020 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
09/12/2024 09:50:20 666,000 4.14 2,757,240
10/12/2024 10:22:15 686,000 4.12 2,826,320
11/12/2024 09:44:11 888,000 4.2 3,729,600
12/12/2024 12:17:56 505,000 4.18 2,110,900
13/12/2024 10:21:45 406,000 4.16 1,688,960
Samtals 3.151.000   13.113.020

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 89.727.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 92.878.000 hluti, eða um 2,52% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 358.692.720 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á [email protected]

Read more

Latest Stories